Við
sannfærum okkur sjálf að lífið verði betra eftir að við
giftum okkur, eignumst börn og síðan annað
barn.
Síðan pirrum
við okkur á því að krakkarnir verði nóg gamlir og við erum sannfærð
um að við verðum betur stödd þegar að því
kemur.
Næst erum við
örg yfir því að við verðum að eiga unglinga. Við munum svo
sannarlega verða hamingjusöm þegar því skeiði verður
lokið.
Við teljum
sjálfum okkur trú um að líf okkar verði fullkomið þegar maki okkar
tekur til í sínum málum, þegar við fáum betri bíl, þegar við fáum
tækifæri á að fara í gott frí eða þegar við setjumst í helgan
stein.
Sannleikurinn
er sá að það er ekki og verður aldrei betri tími til að vera
hamingjusamur en einmitt núna. Ef ekki núna, hvenær þá. Lífið
verður alltaf fullt af áskorununm og viðfangsefnum. Það er best að
viðurkenna þetta fyrir sjálfum okkur og ákveða að vera hamingjusöm
engu að síður, á hverjum degi.
Vinur minn
sagði eitt sinn að í langan tíma hafði mér virst sem líf mitt
væri í þann mund að hefjast- hið raunverulega líf. En alltaf var
einhver hindrun í veginum, eitthvað sem hann þurfti að eignast
fyrst, einhver óútkljáð mál, mig vantaði tíma til að sinna hlutunum
og alltaf voru einhverjar ógreiddar skuldir. Þá gæti ég loks byrjað
að lifa lífinu.
Að lokum rann
upp fyrir mér ljós, þessar ?hindranir? eru líf
mitt.
Þetta
sjónarhorn hjálpar okkur að sjá það að það er engin leið til að
hamingjunni. Hamnigjan er leiðin. Svo að varðveittu og lærðu að
meta hvert augnablik sem þú átt. Lærðu að meta það meira vegna þess
að þú deildir því með einhverjum sérstökum, nógu sérstökum til að
eyða tíma þínum með...og mundu að tíminn bíður ekki eftir
neinum.
Hættu að
bíða, bíða eftir að þú klárir þetta eða hitt, eftir að þú missir
nokkur kíló, eftir að þú náir á þig nokkrum kílóum, hættu að bíða
eftir að þú eignist börn og barnabörn og eftir að börnin flytji að
heiman, eftir að þú byrjir að vinna, að þú hættir að vinna, að þú
giftist, að þú skiljir, eftir laugardagskvöldinu eða
sunnudagsmorgninum, hættu að bíða eftir nýja bílnum, eftir að þú
sért búin að borga upp bílinn eða húsið, eftir vorinu, sumrinu,
haustinu, vetrinum. Hættu að bíða eftir að þú fáir þér drykk og svo
að bíða eftir að það renni af þér. Hættu að bíða eftir að þú
deyir....
Hættu að bíða
eftir að ákveða að, Það er enginn tími betri en einmitt núna, að
vera hamingjusamur... Hamingjan er ekki áfangastaður, heldur
ferðalag. Í dag er tími til að: vinna eins og þú þurfir ekki á
peningum að halda, elska eins og enginn hafi nokkurn tíma sært þig,
dansa eins og enginn sé að horfa.....